Saumaheimur Siggu

Breytt og bjargað - Skráning opin!

Saumaskapur, uppfærsla, Sjálfstraust

Kanntu grunninn í saumaskap, en festist samt eða ert óörugg?

Þetta námskeið hjálpar þér að klára flíkur, með skýrri leið, raunverulegum verkefnum og stuðningi á leiðinni.


8 vikur til að klára flíkur sem þú elskar

- skýr leið og stuðningur

Eitt spor í einu. Með flíkum úr þínum eigin fataskáp

ATH. Aðeins 12 sæti!

Námskeiðið byrjar 1. mars!

Skráningu er lokið

Þetta er staðan hjá mörgum

Þú kannt að:

- þræða saumavél

- sauma beint

- laga einföld atriði

En samt:

- liggja flíkur hálfkláraðar

- efastu um hvort þú sért að gera þetta „rétt“

- frestar flóknari skrefum eins og ermum, hálsmáli eða breytingum

Vandamálið er ekki þú. Þú hefur einfaldlega ekki fengið skýra og örugga leiðsögn frá byrjun til enda.

Þetta námskeið snýst um að:

- vita hvað er næsta skref

- fá staðfestingu á að þú sért á réttri leið

- átta þig á hvað flíkin sem hangir í skápnum, hefur endalausa möguleika á uppfærslu

Þetta er ekki „enn eitt saumakennslunámskeið“.
Þetta er ferðalag frá óöryggi til hugrekkis.

Svona virkar námskeiðið

8 vikur - eitt spor í einu

Í hverri viku:

Þú færð skýra kennslu

Þú vinnur með eina raunverulega flík

Þú klárar, jafnvel þó hún sé ekki fullkomin

Litlu skrefin

Raunverulegir sigrar - rými til sköpunar

Fyrir hverja er námskeiðið?

  • Fyrir þig sem kannt grunninn í saumaskap

  • Fyrir þig sem hefur hugmyndir og flíkur – en festist

  • Fyrir þig sem vilt treysta þér sjálfri, ekki bara læra meiri tækni

  • Fyrir þig sem vilt klára flíkur, ekki safna hálfkláruðum verkefnum

    Ekki fyrir:

  • algjöra byrjendur - skoðaðu "Blaðað í BurdaStyle" frekar og komdu svo á þetta

  • fyrir þær sem vilja hraða, álag eða „ekki-búið-fyrr-en-allt-er-fullkomið“

Hvað færðu?

  • Kennslumyndbönd og skýrar leiðbeiningar

  • Verkefni í hverri viku sem þú tengir þínum eigin flíkum

  • Vikulega tíma á Zoom með kennslu, spurningum og spjalli

  • Samfélag; lokaður hópur fyrir þátttakendur

  • Aðgangu að efninu áfram

  • Félagsskap, stuðning og pepp

Markmið mitt er að

Eftir 8 vikur:

  • veistu hvar þú átt að byrja

  • treystir þínu eigin ákvörðunum

  • sérð möguleika í ónotuðum fatnaði

  • upplifir meiri ró og gleði í skapandi ferlinu

    Þú ert ekki lengur föst. Ferðalagið er hafið!

Aðeins um mig - leiðbeinandann, mentorinn eða pepparann


Ég veit hvernig þetta er, ég hef sjálf verið þarna:

- byrjað á verkefni og áttað mig á að það var of flókið

- fengið frábæra hugmynd, hent mér í gagn og uppgötva svo að hugmyndin gengur ekki upp

- byrjað á skemmtilegu verkefni og ráðið ekki við flækjustigið

- klippt bæði skakkt og vitlaust og talið mig eyðileggja efniviðinn

Ég þekki þetta, þess vegna get ég leiðbeint þér því ég hef lært hvað raunverulega hjálpar fólki að komast áfram.

Í þessu námskeiði er ég ekki dómari
Ég er leiðbeinandi við hliðina á þér, peppa þig áfram og bendi þér á lausnir.

Af hverju ekki að halda bara áfram eins og áður?

Án skýrrar leiðar:

- safnast flíkur upp ónotaðar inni í skáp

- dofnar sjálfstraustið til að byrja á nýjum og spennandi saumaverkefnum

- sköpunargleðin hverfur og smám saman fækkar saumaverkefnum

Þetta námskeið stoppar það ferli!

Ertu tilbúin að taka næsta skref?

Ekki stór stökk
Ekki álag

Bara eitt spor í einu.

Verð kr. 38.000

Aðgangur að öllu efni, PDF og hópi í 12 mánuði

Gjaldfrjáls aðgangur að SaumaSamfélaginu í 3 mánuði frá skráningu og greiðslu

Verð aðeins kr. 38.000

ATH. mörg stéttarfélög taka þátt í kostnaði við þátttöku á svona námskeiði

Ekki missa af þessu, skráðu þig núna!

Hæ, ég er Sigga!


Hver er ég? Ég heiti Sigríður Tryggvadóttir og er alltaf kölluð Sigga.

Ég hjálpa konum að byrja í saumaskap – með hugrekki og sköpunargleði umbreytum við fatnaði og öðrum textíl í sjálfbærar, einstakar flíkur!

Ég á og rek Saumaheimur Siggu, er með yfir 20 ára reynslu í saumaskap og hef síðustu ár sérhæft mig í endurnýtingu á textíl. Ég held námskeið í saumaskap og fatabreytingum og veiti stuðning og ráðgjöf þeim sem vilja finna fjársjóðinn í fataskápnum og byggja sér upp sjálfbærari fatastíl.

Ég trúi því að þegar við sinnum fötunum okkar, saumum, bætum og breytum, verðum við meðvitaðri um tímann og vinnuna sem fer í að setja saman flík – og breytum þar með eigin kauphegðun og þeirra í kringum okkur.

Umsagnir um kennarann

„Sigga er frábær kennari – skýr, þolinmóð og ótrúlega hvetjandi. Hún kennir bæði byrjendum og lengra komnum á einfaldan og skiljanlegan hátt.“

„Færð ekki betri leiðbeinanda! Sigga brennur fyrir fatanýtingu og miðlar af þekkingu sinni með skýrum myndböndum og hvetjandi ráðum.“

„Ótrúlega lærdómsríkt námskeið – Sigga útskýrir allt svo vel að jafnvel flókin atriði verða auðveld.“

Copyright 2025, Sigga

Saumaheimur Siggu